Það er sjaldgæft að fá að stíga inn í nýja veröld en í þessari auglýsingu fyrir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fengum við einstakt tækifæri til að gera einmitt það. Við fylgjum hjúkrunarfræðingum eftir á þeirra eigin vettvangi, þar sem allt er raunverulegt og ósíað. Auglýsingin dregur upp mynd af lífinu eins og það birtist hjúkrunarfræðingum sjálfum; á spítölum, í heilsugæslu, í skólum, inni á heimilum og víðar. Raddir íslenskra hjúkrunarfræðinga leiða áhorfandann í gegnum frásögnina, minna á mikilvægi stéttarinnar og hversu brýnt það er fyrir samfélagið að fleiri velji sér þessa leið.
Markmiðið með verkefninu var að víkka sýn á starf hjúkrunarfræðinga og varpa ljósi á þá fjölbreytni sem starfið felur í sér. Of oft er hugmyndin um hjúkrunarfræðinginn bundin við eina staðalmynd, þegar raunveruleikinn er sá að starfssviðið teygir sig inn á flesta kima samfélagsins. Við vildum einnig leggja okkar af mörkum til að tryggja endurnýjun í stéttinni. Með því að sýna breiddina, ábyrgðina og áhrifin sem starfið hefur, vonumst við til að hvetja fleiri til að sækja um nám í hjúkrunarfræði og sjá þar framtíðarmöguleika.
Hönnunin byggir á einfaldri en áhrifaríkri setningu: við þurfum öll á hjúkrun að halda. Hún er rauði þráðurinn í gegnum allt verkefnið og tengir saman ólíkar aðstæður, fólk og sögur. Sjónrænt er unnið með hring sem tákn. Hann beinir sviðsljósinu að hjúkrunarfræðingum og þeirra störfum, en um leið vísar hann í hringrás lífsins þar sem við öll, á einhverjum tímapunkti, þurfum á hjúkrun að halda.
Hjúkrun snertir okkur öll, og við þurfum öll á hjúkrun að halda.


Hjúkrun snertir okkur öll, og við þurfum öll á hjúkrun að halda.



