Í þessum nýju sjónvarpsauglýsingum fylgjumst við með verðlagseftirliti sem á sér stað inni á heimili í landinu. Fyrsta auglýsingin sýnir frá fjölskyldufundi sem fer óvænt fram í barnaherbergi, þar sem hlutverkin snúast við og barnið tekur stjórnina. Hér eru neysluvenjur foreldranna teknar til umfjöllunar á eftirminnilegan hátt. Í næstu auglýsingum sem fylgja fáum við enn meiri innsýn í það aðhald sem foreldrarnir fá við innkaup til heimilisins.
Auglýsingin byggir á einfaldri en áhrifaríkri sviðsmynd þar sem persónulegt rými barnsins verður vettvangur alvarlegra umræðna. Lovísa Ösp Ögmundsdóttir fer með aðalhlutverkið og skilar af sér frábærri frammistöðu sem heldur athygli áhorfenda frá fyrstu sekúndu. Léttleiki, skýr persónusköpun og sterkur húmor eru lykilatriði í framsetningunni.
Börnum er umhugað um hluti sem skipta máli og geta oftar en ekki bent okkur á hvaða leið er réttust. Markmið auglýsingarinnar er að minna foreldra á mikilvægi meðvitaðrar neyslu og sýna á skemmtilegan hátt hvernig smávægilegar ákvarðanir í dag geta haft áhrif á framtíðina. Með því að láta barn vera rödd skynseminnar er skilaboðunum komið til skila á óvæntan og áhrifaríkan hátt . Það að versla í Bónus er einföld leið til að spara, án þess að fórna gæðum.
Útkoman er auglýsing sem sameinar sterka frásögn og skýr skilaboð. Viðbrögð hafa verið afar jákvæð og ljóst er að auglýsingin hefur náð að vekja bæði bros og umhugsun meðal áhorfenda. Með þessu verkefni styrkir Bónus enn frekar stöðu sína sem vörumerki sem talar beint til fólks á mannlegan og eftirminnilegan hátt.
Það munar um lægra verð.
Munurinn er Bónus.


Aðalleikkona auglýsinganna var aðeins sjö ára þegar tökurnar fóru fram?