Póstlistar

Póstlistar

Póstlista markaðssetning

Markaðssetning í gegnum tölvupósta gætu sumir kallað risaeðlu… en hún er langt frá því að vera útdauð!

Eitt vanmetnasta tólið sem hægt er að nýta sér í markaðssetningu eru póstlistar. Lykillinn er að gera það rétt!

Kosturinn við að nýta sér póstlista er að hægt er að beina skilaboðunum milliliðalaust til fólksins sem vill heyra þau. Erfiðasti parturinn við flestir auglýsingaherferðir er nefnilega að fá fólk til þess að staldra við og hlusta, en þegar sent er í gegnum póstlista er hoppað beint í gegnum erfiðasta hlutann, og þá er bara skemmtilegasti parturinn eftir: Skilaboðin sjálf.

Við notfærum okkar póstlistakerfið Mailchimp til að hámarka árangurinn á póstlista markaðsherferðum. Við sérsníðum útlitið og efnið í markpóstunum að þörfum okkar samstarfsaðila þannig hver og einn póstur sé einstakur og hafi sitt eigið lúkk.

Þannig getum við verið viss um að fólkið sem vill heyra frá þér, fái sent til sín bestu mögulegu útgáfuna af því sem þitt fyrirtæki býður upp á.

Mailchimp

Tölvupósturinn hefur tekið miklum breytingum síðan sá fyrsti var sendur á milli tölva árið 1971.

Möguleikarnir eru mun fleiri en eintómur texti og hægt er að sérhanna og sníða tölvupóst sem aðlagar sig að hverju og einu vörumerki.

Við hönnum efni frá grunni sem notað er í póstinum, skrifum aðlaðandi texta og komum fyrir hlekkjum á viðeigandi stöðum sem leiða beint að vörunni eða þjónustunni sem verið er að bjóða upp á.

Eftir að við sendum póstinn út, höfum við augun opin fyrir opnunarhlutfalli, smellitíðni og öðrum gögnum til þess að sjá hvaða árangri pósturinn skilaði. Þessi gögn geta kúnnar okkar einnig skoðað á sértilbúnum mælaborðum sem uppfærast í rauntíma.

Markpóstur

Stundum getur verið skemmtileg að senda póst (já, bréfpóst) til þess að vekja athygli á herferð sem er í gangi. Árið 2023, sem hluti af herferðinni Heima er pest, sendum við póst til föndurklúbba eldri borgara sem fengu að spreyta sig á skemmtilegum útsaumi við góðar undirtektir.

"Heima er pest" markaðsherferð fyrir auglýsingastofuna Hér&Nú
Markpóstar fyrir Heilsugæsluna sem hannaðir voru af Hér&Nú auglýsingastofu
Skemmtilegir markpóstar fyrir herferð Heilsugæslunnar sem sköpuð var af auglýsingastofunni Hér&Nú
"Heima er pest" markpóstur sem skapaður var af Hér&Nú auglýsingastofu