Vefauglýsingar

Vefauglýsingar

Til þess að koma þínum skilaboðum fyrir framan fólkið sem þú vilt ná til, þá eru vefauglýsingar á vinsælustu netmiðlum landsins frábær leið til þess.

Við getum hannað glæsilega vefborða frá grunni, bætt við hreyfigrafík ef nauðsynlegt er og uppfært þá reglulega með nýjum vörum, tilboðum eða öðru sem þitt fyrirtæki vill koma á framfæri.

Birtingarnar á vefauglýsingunum er alfarið í okkar höndum. Við eigum föst auglýsingapláss á sívinsælum vefsíðum líkt og vísir.is, mbl.is og já.is, ásamt þess að auglýsa á sértækari og staðbundnari miðlum.

Einnig er hægt að endurnýta vel hannaðar vefauglýsingar fyrir hina ýmsu samfélagsmiðla svo að dekkunin verði enn víðtækari. Okkur er fært að endurmiðla auglýsingum til notenda sem hafa heimsótt vefsíðuna þína, og jafnvel bætt vörum í körfu, sem eykur líkurnar á því að þeir klári söluna.

Svo setjum við upp ítarlegt mælaborð þar sem hægt er að fylgjast með nákvæmri útlistingu á birtingum, dekkun, smellum, skruntíðni og fleiri upplýsingum sem fullvissa þig um að auglýsingaherferðin sé að skila árangri.

Vefborðar

Við vinnum með öllum helstu fréttamiðlum landsins til þess að birta vefborða af ýmsum stærðum fyrir okkar kúnna. Vefborðarnir geta verið hreyfðir og uppfærast eftir því hvað fyrirtækið vill leggja áherslu á hverju sinni.

Faðmlag

Stundum viljum við knúsa efnið á vefnum frá öllum hliðum með vefborðanum okkar. Þá fara skilaboðin ekki framhjá neinum. Þetta köllum við á góðu fagmáli: faðmlag.

Vefmiðlar

Við erum í samstarfi við alla helstu miðla landsins þar sem við birtum okkar vefauglýsingar. Bæði þeir allra stærstu, sértækari miðlar og fréttasíður fyrir landshluta og kaupstaði.

image