Google auglýsingar

Google auglýsingar

Það eru fáir vefmiðlar sem hafa náð því afreki að verða sagnorð, og ef þú trúir því ekki, gúglaðu það!

Google Ads

Google er í miðju sólkerfisins sem öll umferð á vefnum snýst um.

Það kemur ekki á óvart að Google sé mest heimsótta vefsíðan á netinu og er svo samtvinnuð okkar daglegu internet notkun að við hugsum varla um hana sem vefsíðu, hún einfaldega „er“. Því er gríðarlega mikilvægt fyrir öll fyrirtæki og stofnanir að vera með góða stöðu á Google.

Þegar vefsíðunni þinni hefur verið hagrætt fyrir leitarvélar, er ekki hægt að staldra við og reiða sig einungis á lífræna traffík. Samkeppnin er hörð og því þarf að notfærir sér auglýsingar á Google, þannig stekkurðu fremst í röðina og getur birst (lang)efst í leitarniðurstöðum.

Við hjálpum þér að einblína á þau leitarorð sem skipta mestu máli fyrir þitt fyrirtæki svo þú getir verið viss um að tilvonandi kúnnar sjá þitt vörumerki fyrst á lista þegar leitað er að þeim vörum eða þjónustu sem þitt fyrirtæki bíður upp.

Auglýsingaherferðir á Google eru margslungar og fara um víðan völl. Þær birtast ekki einungis á leitarsíðunni, heldur getur þitt vörumerki birst á Google Maps, Gmail, Google Discover og hinum ýmsu vefsíðum og öppum sem birta auglýsingar í samstarfi við Google.

Ekki má gleyma að Youtube tilheyrir líka Google, og við leggjum áherslu á að það sé samræmi á milli auglýsinga hjá þínu vörumerki, alls staðar þar sem þær birtast.

Google Display

Google er í samstarfi við yfir tvær milljónir vefsíðna þar sem sérsniðnar auglýsingar fyrir þinn kúnnahóp geta birst.

Hægt er að velja nákvæmlega þann markhóp sem auglýsingarnar eru birtar fyrir, hvort sem það sé miðað við kyn, aldur, tungumál, þjóðerni og auðvitað áhugamál ýmis konar.

Google Display auglýsingar eru einstaklega hentugar til þess að viðhalda vörumerkjavitund meðal almennings. Með því að halda sér fyrir framan augu fólks þá er vörumerkinu haldið ofarlega í huga fólks til lengri tíma

Á meðal samstarfsaðila Google Display þar sem auglýsingar geta birst má nefna LinkedIn, TripAdvisor, wikiHow, ESPN, New York Times, Tumblr, WordPress og fleiri.

Performance Max

Það má best lýsa Performance Max sem alls herjar auglýsingaherferð á öllum miðlum Google, samtímis. Þannig er hægt að fylgja mögulegum kúnnum í gegnum hina mörgu miðla sem tilheyra Google.

Notast er við gervigreind til þess að hámarka afköst af birtingakostnaði. Þannig greinir Google nákvæmlega hvaða notendur eru líklegastir til þess að leiða til sölu.

Svo að herferðin geti orðið farsæl þarf Google að hafa nothæfan gagnagrunn til að vinna úr og því er best að nota P-Max þegar búið er að keyra aðrar herferðir í nokkurn tíma.

Miðlarnir sem heyra undir P-Max eru Google leitarvélin, YouTube, Google Maps, Gmail, Google Discover, Google Shopping og Google Display.

YouTube auglýsingar

YouTube auglýsingar geta verið af ýmsum gerðum. Stundum er það fljótleg leið til þess að að vekja athygli á tímabundnu tilboði eða stuttan skráningarfrest á atburð eða námskeið.

Í öðrum tilvikum er hægt að nýta sér YouTube til þess að hafa stöðuga viðveru á vinsælum miðli og halda uppi vitund á vörumerkinu á meðal fólks.

Næst þarf að skapa frábærar 5 sekúndur af efni sem kemur skilaboðum fyrirtækisins til skila og helst þannig að notandinn dvelji lengur við áður en skip-hnappurinn er mundaður.

Hér&Nú getur unnið hugmyndavinnuna og framleitt efni frá grunni, hvort sem það sé kvikmyndað eða skapað í tölvu. Einnig getum við einfaldlega tekið við tilbúnu efni og verið viss um að það skili sér til tilvonandi viðskipavina.

YouTube er hægt að nota sem aðal miðil fyrir auglýsingaherferð, sérstaklega þegar beint er að sértækum markhópi, en í öðrum tilvikum virkar YouTube vel sem auka miðill við stærri markaðsherferð, þar sem auðvelt er að endurnýta efni sem framleitt er fyrir sjónvarp og nota það á YouTube líka.

Markhópagreining á YouTube

Youtube hefur líklegasta breiðasta notendahóp allra miðla á netinu, frá bókstaflega 0 til 100+ ára. Því eru möguleikarnir miklir þegar kemur að því að koma þínu vörumerki fyrir framan stóran hóp af fólki.

Kúnstin við farsæla auglýsingaherferð á YouTube er góð markhópagreining, þar sem einblínt er nákvæmlega á þann hóp sem þú vilt auglýsa til.

Hægt er að nota ýmis tól til þess að koma skilaboðunum í réttan farveg. Þar sem að YouTube heyrir undir Google, eru aðgengileg ógrynni gagna frá leitarorðarisanum sem nýtast til þess að hnitmiða auglýsingunum til rétta fólksins.

Í öðrum tilvikum er best að varpa fram skilaboðunum til breiðs hóps fólks í allsherjar markaðsherferð svo að þau fari ekki framhjá neinum.

Atlantsorka

Vel unnar sjónvarpsauglýsingar geta lifað löngu lífi á YouTube, þar sem birtingakostnaðurinn er ekki jafnhár, en auðvelt er að halda góðri vörumerkjavitund á meðal almennings.