Auglýsingar á útvarpsmiðlum geta margborgað sig ef þær eru hnittnar, vel lesnar og skilja eitthvað eftir sig.
Kosturinn við útvarpsauglýsingar er að þær geta náð óskiptri athygli hlustandands á meðan hann er, í mörgun tilfellum, keyrandi í umferðinni eða sinna húsverkum.
Hér&Nú er fært um að sjá um hugmyndavinnuna fyrir þitt fyrirtæki að eftirminnilegum hljóðauglýsingum. Við fáum til liðs við okkur raddleikara eða skemmtikrafta sem ljá skilaboðunum persónuleika og við sjáum líka um að birta auglýsinguna á helstu útvarpsstöðum landsins.
Hljóðupptökurnar sjálfar er hægt að endurnýta á samfélagsmiðlum með því að bæta við grafík eða hreyfihönnun og gefa þeim myndefni sem passar við.
Ef verið er að keyra allsherjar auglýsingaherferð þvert á marga miðla, er mikilvægt að það sé góð dekkun á útvarpsmiðlum sem og annars staðar til þess fanga athygli fólks á mörgum sviðum.





