Samskipti við umheiminn geta skipt sköpum fyrir velgengni fyrirtækja til skemmri og lengri tíma.
Samskipti við umheiminn geta skipt sköpum fyrir velgengni fyrirtækja til skemmri og lengri tíma.
Góð samskipti við almenning eru gríðarlega mikilvæg og ómissandi partur af heildstæðri markaðssetningu. Samskiptin þurfa að byggja á réttri stefnumótun sem passar við fyrirtækið eða stofnunina sem um ræðir.
Við getum hagrætt skilaboðum sem geta reynst flókin eða torskilin og hnitmiðað þeim svo að þau séu auðskiljanleg og aðgengileg fyrir almenning.
Sem dæmi um farsæl almannatengsl úr langri sögu Hér&Nú má nefna tilurð Mottumars, sem varð til árið 2010. Til þess að minna á mikilvægi krabbameinsskimunar fyrir karla hvöttum við til vaxtar yfirvaraskeggja sem vakti gríðarlega athygli og mikið umtal á meðal almennings, fjölmiðla og víðar. Enn þann dag í dag hefur þessi hefð viðhaldist ár hvert og reynst ómetanleg fyrir almannaheilsu.
Við erum alltaf að hugsa um nýjar leiðir til þess að vekja athygli og jákvætt umtal, hvort sem það sé í samtölum manna á millum, á fréttaveitum landsins eða deilt frjálslega á samfélagsmiðlum.
Hvers virði eru vel unnin störf ef enginn heyrir af þeim? Tökum spjallið og færum það út á við!
Auglýsingar standa alltaf fyrir sínu þegar kemur að því að miðla ákveðnum skilaboðum til almennings, en það er fátt betra en jákvætt umtal í fjölmiðlum. Við grípum tækifærin þegar þau gefast og fáum góða umfjöllun um þitt fyrirtæki þegar það skiptir máli.
Skemmtilegar uppákomur þar sem fólk kemst í nánd við fyrirtæki eða stofnun með jákvæðum hætti, getur gert mikið til þess að bæta ímyndina út á við... og það er líka bara gaman!
Við leggjum höfuðið í bleyti og framkvæmum ferskar hugmyndir fyrir eftirminnilega viðburði sem munu vekja athygli á meðal almennings á fá fólk til þess að deila upplifun sinni.
Það tekur 20 ár að byggja upp orðspor en aðeins 5 mínútur til að eyðileggja það. Svo mælti Warren Buffett og hafði eitthvað til síns máls. Því er viðbragðstíminn lykilatriði þegar kemur að krísustjórnun og eins gott að snúa sér til sérfræðinga til þess að feta sig rétt þegar í harðbakkann slær. Við hjálpum fyrirtækjum að stýra sig úr erfiðum aðstæðum með okkar löngu reynslu í almannatengslum.
Boðið var til hátíðlegrar kennslustundar með Stefáni Pálssyni þar sem búið var að stilla upp skólastofu undir berum himni í miðbæ Reykjavíkur til þess að vekja athygli á þeirra fjölda bygginga HÍ sem fjármagnaðar voru með Happdrætti Háskólans. Viðburðurinn var hluti af afmælishátíð Háskóla Íslands og vakti mikla athygli, bæði í fjölmiðlum og meðal gesta.
Sérstökum endurvinnslutunnum var komið fyrir í verslun Blush og á endurvinnslustöðvum Sorpu til að taka á móti ónýtum unaðstækjum. Ferðast var á milli staða og fólk var hvatt til þess að endurnýta raftæki af öllum gerðum.
Atlantsolía er orðin fræg fyrir óþolandi grípandi lögin sín. Þeim var safnað saman í Reif í dæluna og hlaut hún gullplötu vegna fjölda spilana á Spotify og lagið Bensínlaus sat sem fastast á topplistum landsins vikum saman. Í dag er lagið með yfir níutíu og fimm þúsund spilanir á streymisveitunni.
Hér&Nú sér um markaðsstarfsemi fyrir hið árlega Reykjavíkurmaraþon og er markmiðið alltaf að toppa árið á undan. Í tilefni af 40 ára afmæli hlaupsins var ákveðið að líta um öxl yfir öll þau fyrstu skref sem hafa verið tekin í maraþoni í gegnum áratugina. Markaðsherferðin vakti mikla athygli og var bæði metaðsókn og mesta söfnun áheita í sögu hlaupsins.
MUA SIRIUS, ný snyrtivörulína Nóa Siríus, leit dagsins ljós undir handleiðslu Hér&Nú. Hér voru þekktustu vörumerki fyrirtækisins sett í nýjan búning sem sló í gegn hjá þjóðinni. Sérstakar snyrtibuddur voru sendar til áhrifavalda og haldin var fjölmenntur viðburður á Menningarnótt þar sem snillingarnir úr Æði gáfu snyrtiráð og myndaðist röð út á götu.