Grafísk hönnun

Grafísk hönnun

Ímynd vörumerkis er fyrst og fremst byggð á útlitinu, og því er eins gott að ná því rétt.

Hvort sem það er sanngjarnt eða ekki, þá tekur fólk ákvarðanir á stuttum tíma og býr sér til ímynd af fyrirtækjum byggt á því sjónræna efni sem liggur fyrir því. Þar spilar grafísk hönnun stórt hlutverk í að skapa þá ásýnd vörumerkis sem fólk tengir við það.

Okkar margverðlaunuðu hönnuðir hafa frábæra reynslu í því að hanna og búa til myndrænt efni sem grípur fólk sem smellpassar við fyrirtækið eða stofnunina sem hannað er fyrir.

Grafísk hönnun hefur margar birtingamyndir, á stafrænum miðlum, í blaðaauglýsingum, fyrir ýmis konar bréfsefni og að sjálfsögðu fyrir merkið sjálft, hið svokallaða lógó, sem einkennir fyrirtækið í augum almennings.

Stafræn hönnun

Þegar kemur að markaðssetningu á netinu er flott stafræn hönnun algjört skilyrði. Stafrænir miðlar hafa aldrei verið mikilvægari til þess að viðhalda ímynd og mörkun fyrirtækja og gæta þarf að hönnunin geti aðlagast að hverjum og einum miðli.

Vefhönnun

Við sjáum um vefsíðugerð sem endurspeglar hönnunarheim hvers og eins fyrirtækis. Mikilvægt er að vefhönnun sé í samræmi við mörkun stofnunarinnar og enn fremur þarf vefsíðan að vera notendavæn og auðveld í notkun.

Hreyfihönnun

Snjöll hreyfigrafík getur lyft vefauglýsingu upp á hærra plan. Þegar kemur að því að ná athygli notandans með vefborðum á fréttamiðlum landsins, er það nánast skilyrði að auglýsingin sé hreyfð. Þarna koma hreyfihönnuðir okkar til bjarga, sem hafa ára langa reynslu í þessum geira.

Umbúðahönnun

Elsta tegund markaðssetningar er sjálf umbúðahönnunin, og þá viltu að varan þín standi út úr á búðarhillunni og gera sig einkennandi fyrir mögulega viðskiptavini.