Textagerð

Textagerð

Í tíu þúsund ár hefur hið ritaða orð staðið fyrir sínu og stendur þar enn.

Textaskrif

Við höfum langa reynslu af því að skrifa texta á öllum sviðum markaðsmála. Hvort sem það er fyrir auglýsingar, samfélagsmiðla, útvarpslestur, markpósta, bæklinga eða annað markaðsefni.

Lýsandi og vel skrifaður auglýsingatexti getur gert herslumuninn þegar kemur að því að sannfæra lesandann um að taka ákvörðun og stökkva á tækifærið sem skrifað er um. Það er lykilatriði að góður texti sé ekki torskilinn eða óþarflega flúraður, heldur auðskiljanlegur og fljótlega inntekinn af lesandanum.

Að skrifa texta er eitthvað sem allir geta gert. Jafnvel kettir þegar þeir spígspora yfir lyklaborðið. Hins vegar er vel flæðandi texti sem er haglega skrifaður og kemur skilaboðum skýrt til skila er ekki á allra færi. Því er þess virði að láta fagfólk sjá um hið ritaða orð svo að textagerð sé af hæsta mögulega gæðastaðli í samræmi við heildar ásýnd fyrirtækisins.

Slagorð

Stundum er hægt að taka sér góðan tíma í að lýsa nákvæmlega hvaða þjónustur eða vörur eru í boði, af hverju einhver ætti að nýta sér þær og hvers vegna fyrirtækið eða stofnunin sem um er ræðir sé sú besta á sínu sviði.

Stundum.

Í öðrum tilvikum þarf að koma sér beint að efninu. Gott slagorð þarf að hitta beint í hjartastað með nokkrum vel völdum orðum sem koma til skila öllu því sem vörumerkið stendur fyrir.

Hugmyndasmiðir Hér&Nú hafa skrifað mörg vel þekkt slagorð í 36 ára sögu stofunnar og eru alltaf að leita að réttu orðunum fyrir nýjustu markaðsherferðina.

Gætir unnið, tapar aldrei

Með þessu slagorði fyrir Happdrætti Háskóla Íslands vildum við minna á að þegar fólk tekur þátt í happdrættinu er það að styðja áframhaldandi háskólastarf á Íslandi.

Hér&Nú
Hér&Nú

Heima er pest

Markmiðið með þessu slagorði, og meðfylgjandi herferð, var að létta á álagi hjá Heilsugæslunni með því að hvetja almenning að halda sig heima þegar það smitast af umgangspest. Þessi herferð vann 3 Lúðra á íslensku auglýsingaverðlaununum.

Sköpum drauma heima

Með endurmörkun Ormsson vildum við slagorð sem mundi minna á þá ótal möguleika sem verslunin hefur upp á að bjóða fyrir fólk til að skapa sér sína eigin draumaheima, heima.