Lógó hönnun

Lógó hönnun

Merkjahönnun

Merki þarf að vera einkennandi, einstakt og einfalt. Hvort sem það er stórt eða smátt, ætti lógó að vera vel þekkjanlegt og vekja hughrif á einu augabragði.

Góð lógó hönnun getur lyft vörumerki á hærra plan og gert það tímalaust. Í dag þurfa einkennismerki fyrirtækja að vera einstaklega sveigjanleg og fjölhæf. Merkið þarf að virka eitt og sér á stóru auglýsingaskilti, en jafnframt verið þekkjanlegt sem lítill hnappur eða tákn í síma.

Þegar við hönnum logo fyrir okkar samstarfsaðila fáum við innblástur frá sögu eða starfsemi fyrirtækisins sem endurspeglast síðan í merkinu. Þannig er hægt að koma miklum upplýsingum til skila í einföldu merki.

Ormsson

Eftir 100 ára sögu var ákveðið að hin ástsæla raftækjaverslun Bræðurnir Ormsson mundi endurmarka sig sem einfaldlega Ormsson, með nýtt lógó að auki. Hér&Nú hannaði merkið svo það væri ferskt, sveigjanlegt og fært um að standa hlið við hlið hinna fjölmörgu hágæða rafvörumerkja sem seld eru í versluninni.

Styrkás

Merki Styrkáss er brútalískt og sækir innblástur í stólpa, stoðir, stöpla, öxla og ása sem minnir á uppbyggingu við atvinnulífið, sem er megin starfsemi fyrirtækisins.

New Reality

New Reality er nýstárlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í sýndarveruleika og annars konar nýmiðlun. Því er uppruni merkisins skuggamynd af hinum klassíska þrívíða kassa, sem síðan var víkkaður út í upphafsstafi fyrirtækisins.

Kvika

Markmiðið með sköpun ásýndar Kviku var fyrirtæki sem gæti hafa verið til í 100 ár, og mun verða til staðar að minnsta kosti 100 ár til viðbótar. Niðurstaðan var valið vörumerki ársins á Lúðrinum, íslensku auglýsingaverðlaununum.

Brú Lífeyrissjóður

Fyrir endurmörkunina hjá Brú lífeyrissjóði vildum við leggja áherslu á kjarnann í nafni fyrirtækisins og hvernig það endurspeglar þjónustu þess. Lógóið samanstendur af þremur brúm, stórum og smáum, því saman erum við sterkari.

1238: The Battle of Iceland

1238 er safn á Sauðárkróki sem endurskapar frægustu atburði Sturlungaaldarinnnar í sýndarveruleika. Merkið er innblásið af klassískri miðalda hringabrynju og járnsverði sem mynda ártalið sem hinn alræmdi Örlygsstaðabardagi átti sér stað, 1238.

Amma Don

Dularfulli speakeasy barinn Amma Don fékk Hér&Nú til þess að hanna fyrir sig tímalaust lógó sem smellpassar inn í notalegan heim ömmunnar goðsagnakenndu. Merkið birtist ekki aðeins á drykkjarseðlinum og markaðsefni fyrir barinn, heldur er hann greiptur í ísmolana sjálfa sem notaðir eru í kokteilum staðarins.

Skel

Endurmörkun á Skel fjárfestingafélagi fól í sér uppfærslu á merkinu með það markmið að gera það nútímalegt og klassískt í senn. Lógóið var sett í nútímalega steinskrift með skýra vísun í fortíð, nútíð og framtíð.

image

Högni Valur Högnason