Hreyfihönnun

Hreyfihönnun

Góða stafræna hönnun er hægt að undirstrika með hreyfigrafík sem fær hana til að standa upp úr.

Þegar kemur að auglýsingum á stafrænum miðlum, þá er sífellt að verða mikilvægara að nýta sér hreyfigrafík til þess að fanga athygli notandans.

Hreyfihönnun er hægt að nota til þess að leggja áherslu á helstu skilaboð auglýsingarinnar, hvort sem það séu nýjar vörur, sérstök tilboð eða takmarkað upplag. Í sumum tilvikum er jafnvel hægt að láta auglýsinguna vera alfarið teiknaða og nýta sér þrívíðar módel fyrir hreyfigrafíkina.

Í okkar röðum eru vel reyndir hreyfihönnuðir sem veita stafrænum auglýsingum líf með því að koma hlutunum á hreyfingu og gera sem mest úr birtingum á netinu. Einnig er hægt að nýta sér hreyfihönnun við gerð auglýsinga fyrir sjónvarp eða YouTube í bland við kvikmyndað efni.

Ásamt því að hanna grafíkina, munum við veita þínu fyrirtæki ráðgjöf hvernig best er að nýta sér hreyfigrafík til þess að hámarka áhrif auglýsinganna.

Vefborðar

Snjöll hreyfigrafík á vefborða getur gripið athygli lesanda á stafrænum miðlum. Hér rís aðalbygging Háskólans upp úr jörðinni í einum rykk, sem hreyfihönnuðir okkar gerðu að veruleika.

Samfélagsmiðlar

Það eru margar leiðir til þess að nota hreyfihönnun á samfélagsmiðlum, hvort sem það er til að sýna vöruúrval með sniðugum hætti eða finna ferskar leiðir til að fanga athygli notandans.

Sjónvarpsauglýsingar

Stundum er hægt að framleiða heila sjónvarpsauglýsingu án þess að nokkurn tímann öskra "action!". Sumar sjónvarpsauglýsingar verða alfarið til í höndum okkar hreyfisnillinga.